18október

If I were a boy...

... Þá væri ég rosalega flottur karlmaður!

Ég velti því oft fyrir mér afhverju ég er með bloggsíðu.. Kannski er það svo ég geti komið hugsunum mínum  á blað. Það er reyndar mjög gott ef maður á óleyst vandamál og er kannski í sálarflækju eða eitthvað að bara skrifa allt sem maður er að hugsa, niður á blað og setja það svo á mjög leynilegann stað:)
(Ekki það að ég eigi í neinni sálarflækju, bara svona "tip of the day")

Ég er bara á fullu í skólanum og a vinna vinnurnar mínar og það er bara allt voða gott, fyrir utan mikið heilsuleysi. Það er bara gaman núna þó að það sé kreppa. Ég er að læra að kunna að meta forníslenskar bókmenntir. Ég er að verða búin að klára að lesa Njálu og ég bara held að þetta sé besta bók sem ég hef lesið í langann tíma, bara nokkuð skemmtileg lesning og ég mæli hiklaust með þessari bók við hvern sem er. Það er svo sniðugt að sjá hvaðan orðatiltæki og svona skrítnar setningar koma..

Ég er bara alveg að klepra úr leiðindum núna heima hjá mér, veit ekki alveg hvað ég á að gera... Hmm kannski sofa, það er nauðsynlegt...  Eða bara halda áfram að blogga þetta innihaldslausa blogg ;)

Markmið hjá mér fyrir árið 2009 er að vera með meira hár á höfðinu en ég hef nokkru sinni verið með, hef nefninlega ekki farið í klippingu í ár núna og ég er mjög sátt með lúkkið. Það er GEÐVEIKISLEGA þykkt... Kannski verð ég kölluð Massa hárfagra.. Kannski ekki...

Já og svo er ég farin frá Símanum yfir í NOVA. RÓLEGAN ÆSING ég er enn með sama númerið! Ég fékk nýjann 3G síma og svo fékk ég líka pung. Svona netpung.

Jæja þá er þetta bara orðið gott í bili..
Mæli með "Iff I were a boy" með Beyonce.

Massa, sem er með Villa Vill á heilanum





Það er svo einfalt,
Ég eiga vil þig einn,
og seigðu ekki að ég sé.
AAAAÐEIIINSSS of seinn að sjá það,
að þetta sé ekki tiiiiil neiiiiiinnnnnsss....

18. október 2008 klukkan 01:02
Marsibil Sara Pálmadóttir
1 athugasemd
18ágúst

Lenovo Kvekendeđ...

Hæ ég er hér og ég er að blogga á nýju tölvuna!! Jááááá ég er búin að fjárfesta í nýrri tölvu og hún er Lenovo geggjað kúl og góð. Þetta er fyrsta tölvan sem ég eignast alveg sjálf og tilfynningin er góð...

En já það hefur margt á daga mína drifið síðan í júní. 
Ég fór á Leyningshóladaginn á laugardaginn síðasta og það var mjög gaman, ég tók fullt af myndum en ég er bara að vinna í því að koma þeim fyrir einhversstaðar á netinu.. Þar seinustu helgi var ég á reunioni með gamla hrafnagili 87 bekknum.. Það var ÓGEÐSLEGA gaman!! Við hlógum svo mikið að ég gleymi þessu seint..  Við hlóðum grill úr grjóti og settum grillgrind ofaná. Þegar við vorum búin að vera að grilla í ca hálftíma þá sprakk steinn í miðju grillinu og setti sót á kjötið og áföll í hjörtun okkar :)  Svo var náttúrulega drukkið og Binni grillaði sykurpúða og sletti þeim í andlitið á mér glóandi heitum og þegar hann ætlaði að kæla sárið þá skvetti hann kaptein morgan í andlitið á mér og þið getið rétt ýmyndað ykkur hvernig tilfynningin var!!! 

En annars þá er sumarið búið að vera mjög gott og veturinn verður örugglega enn betri.. Ég verð að vinna við skúringarnar á Krummakoti og svo var ég að fá vinnu á Hrafnagili sem skólaliði hálfann daginn, og svo verð ég í fjarnámi með þessu öllu saman..

Það fer að líða að því að við í unglingadeild Dalbjargar förum að auglýsa störf vetrarins og það verður líka skemmtilegt verkefni. Því miður er hún Sunna sennilega að fara að vera eitthvað lítið með okkur í þessu en hún er að fara að eiga lítið kríli í september.



Jæja veit ekki hvað ég á að segja meira þannig að ég bara seigi

Takk og bæ Massan
18. ágúst 2008 klukkan 20:44
Marsibil Sara Pálmadóttir
2 athugasemdir
26júní

Viagra

Ég er risin upp frá dauðum. Tölvan er nefninlega búin að vera biluð i langann tíma og ég hef ekki komist til að blogga neinsstaðar annarstaðar.  En við sendum þennan forngrip sem ég er að pikka í núna í viðgerð og ætlum svo að kaupa nýja í haust þegar það koma svona skólatilboð. 
Þá er ég búin að gera grein fyrir ástæðunni minni fyrir bloggleysinu, og vegna fjölda áskoranna "hóst" ætla ég að blogga aðeins núna..

Núna hef ég loksins tíma þar sem ég er veik heima, er bara að bugast úr frjókorna ofnæmi, en er svona að skána núna.  Ég er bara búin að vera að vinna á fullu.  Er að vinna á Árholti (dagvistunarheimili fyrir fötluð börn og unglinga) frá 8 til 16 alla virka daga og fer svo að skúra á krummakoti í 4 tíma á dag, virka daga.. Þannig að það er nóg að gera hjá mér í sumar, sem er bara ljómandi gott.. Svo er ég að fara að taka stúdentinn með trompi vonandi bara mjög fljótlega. Það er bara orðið svo dýrt að lifa að ég ætla að vinna mikið og vera svo í slatta fjarnámi við VMA. Það ætti að ganga bara fínnt upp :)

En já, ég er mikið að brasa í sumar, er þegar búin að eyða einum degi í girðingarvinnu hjá teingdó( fékk annars stigs sólbruna á axlir og bak eftir það), Ég er búin að taka eitt gott djamm( Ég á vonandi eftir að taka nokkur fleiri í sumar).. Ég er að fara á ættarmót núna um helgina hjá móðurættinni minni, hlakka mjög til en vona bara að ég verði orðin betri af ofnæminu mínu því að við Eiður ætlum að gista í tjaldi og það fer yfirleitt alltaf illa í mig að gista í tjaldi.. Og svo er reunion hjá gamla bekknum mínum úr hrafnagilsskóla og ég hlakka mjög til þess að hitta alla og rifja upp góðar stundir :) Svo vonandi verður skipulagður hjólatúr upp í Laugarfell svo æeg geti komið með eina ferð í sumar. Það verður án efa geggjað :)....

En jámm ég ætla að fara að sjóða vatn til að sótthreinsa augun mín..

Sæl í pungin á ykkur :)
26. júní 2008 klukkan 13:48
Marsibil Sara Pálmadóttir
5 athugasemdir
10maí

P.S I love you

Ég hef svosem ekkert að segja en ég rakst inná youtube, tengil úr myndinni P.S I love you og ég fór bara næstum að gráta....

Fór bara að hugsa um það þegar það var gistipartý heima hjá mér í sveitinni og við stelpurnar vorum allar að sjá Titanic í fyrsta skiptið nema Fanney, held að hún hafi verið búin að sjá hana... Atriðið þegar skipstjórinn var inní stýrishúsinu og allir gluggarnir brotnuðu undan þrýstingnum þá fóru allar stelpurnar að gráta nema ég afþví að ég hafði þá stálhjarta :) En svo 5 mínútum eftir myndina þá kreysti ég upp smá tár afþví að mér fannst ömurlegt að vera útundan :) Stelpurnar urðu pirraðar afþví að ég var að feika það og ég varð mjög sár að þær skildu fatta hehe :) 

En ég hef grátið mest yfir einni mynd en það er P.S I love you.. Fór í bíó með Völlu á þessa mynd en við höfum mest sótt hryllingsmyndir saman afþví að kallarnir þora ekki að fara :) hehe.... En án djóks ég bara grenjaði í bíóinu og var að vona að Valla tæki EKKI eftir því afþví að ég er svo mikið kúbein, held sammt að hún hafi séð það smá :(  

En ég mæli með þessari mynd..  Fær mann til að hugsa um þá sem standa manni næstir og bara að nýta tímann með þeim sem manni þykir vænst um... 

Það er tip og the day : Notið þann tíma sem þið hafið, hann kemur aldrei aftur


Massa :)
10. maí 2008 klukkan 15:14
Marsibil Sara Pálmadóttir
5 athugasemdir
05maí

Međ sól í hjarta...

Helvítis, var búin að blogga geggjað mikið og þá datt allt út!!!!

En jámm það hefur margt skeð síðan ég bloggaði seinast. Það var fjölskyldudagur hjá Dalbjörgu uppí víkurskarði og fórum við með sleðann hans Jóa Bróa og það var ÓGEÐSLEGA gaman!!!  Svo um kvöldið þá var aðalfundur Dalbjargar og þar var Eiður Jónsson kosinn FF!!!

Svo helgina eftir það þá hélt Dalbjörg tækjamót upp í Jökuldal(Nýjadal) og við gistum í þeim ógeðslegasta skála sem ég hef komið inní og eins og það væri ekki nóg að gista þar þá þurfti ég að eyða laugardeginum þar líka þar sem ég, Helga, Íris og Jói þurftum að grilla læri ofaní liðið.. Það tókst að lokum þó erfiðar aðstæður væru fyrir hendi.. ..

Svo fórum ég, Eisi, Valla og Dúddi suður um helgina á bílar og sport sýninguna, en þar sem íbúðin okkar var bara við hliðina á smáralind þá stóðumst við Valla ekki mátið og vorum eila bara í búðum alla helgina.. Ég hitti Fanney á laugardagskvöldið og fórum við skvísur í bíó í lúksus smárann og það var geggjað...

En jámm ég er með flensuna og var að koma úr smá aðgerð á bakinu þannig að ég er bara að jafna mig....

og að lokum lexía dagsins... Gerðu allt eins vel og þú getur, þó að einhverjir sjái ekki hversu vel þú gerir hlutina þá veist þú betur!!! :)

Takk og Bæ Marsibil Sara Pálmadóttir
05. maí 2008 klukkan 09:57
Marsibil Sara Pálmadóttir
Engin athugasemd
05maí

Međ sól í hjarta...

Helvítis, var búin að blogga geggjað mikið og þá datt allt út!!!!

En jámm það hefur margt skeð síðan ég bloggaði seinast. Það var fjölskyldudagur hjá Dalbjörgu uppí víkurskarði og fórum við með sleðann hans Jóa Bróa og það var ÓGEÐSLEGA gaman!!!  Svo um kvöldið þá var aðalfundur Dalbjargar og þar var Eiður Jónsson kosinn FF!!!

Svo helgina eftir það þá hélt Dalbjörg tækjamót upp í Jökuldal(Nýjadal) og við gistum í þeim ógeðslegasta skála sem ég hef komið inní og eins og það væri ekki nóg að gista þar þá þurfti ég að eyða laugardeginum þar líka þar sem ég, Helga, Íris og Jói þurftum að grilla læri ofaní liðið.. Það tókst að lokum þó erfiðar aðstæður væru fyrir hendi.. ..

Svo fórum ég, Eisi, Valla og Dúddi suður um helgina á bílar og sport sýninguna, en þar sem íbúðin okkar var bara við hliðina á smáralind þá stóðumst við Valla ekki mátið og vorum eila bara í búðum alla helgina.. Ég hitti Fanney á laugardagskvöldið og fórum við skvísur í bíó í lúksus smárann og það var geggjað...

En jámm ég er með flensuna og var að koma úr smá aðgerð á bakinu þannig að ég er bara að jafna mig....

og að lokum lexía dagsins... Gerðu allt eins vel og þú getur, þó að einhverjir sjái ekki hversu vel þú gerir hlutina þá veist þú betur!!! :)

Takk og Bæ Marsibil Sara Pálmadóttir
05. maí 2008 klukkan 09:57
Marsibil Sara Pálmadóttir
Engin athugasemd
04apríl

Mjáááááá...

Núna er dagurinn búinn að vera alveg þokkalgur... Ég er hætt að vera lasin og það er bara ljómandi gott. Ég er að fara í bíó í kvöld með Eisa eina manninum og svo annaðkvöld er stefnan tekin á Greifann þar sem við erum að fara að borða með fjölskylduni hans Eisa.. Hlakka mikið til þar sem Greifinn klikkar sjaldan eða aldrei..

Ég er mjög langt leidd í verslunar sýki.. Bara versla og versla þangað til ég ranga við mér heima,  og bara óboj hvað var ég að gera núna????...

Ætlaði annars bara að blogga pínu núna ekkert merkilegt...

Leiter... Massan hressa :)
04. apríl 2008 klukkan 15:51
Marsibil Sara Pálmadóttir
Engin athugasemd
03apríl

Stađreyndir lífsins....

Við stelpur getum ekki lifað með strákunum en getum heldur ekki lifað án þeirra..
Það hafa ALLIR karlmenn eitthvað að fela(já ekkert svona "minn segir mér allt) það er bara ekki satt, ég hef talað við ólíklegustu karlmenn og það er óþægilega oft sem þeir segja ,,Ég ætla að trúa þér fyrir svolitlu og þú mátt ekki segja ******* það"....

jæja þá er maður komin í klemmu því að ég vil ekki þurfa að þegja yfir einhverju sem ég myndi vilja fá að vita sjálf, væri ég *******... Fattiði?

Já ég er á þeirri skoðun að maður verður bara að passa sig að þykja ekki of vænt um einhvern EINN, þá verður maður ekki jafn sár ÞEGAR upp kemst um hann.. Því  eins og gamalt máltæki segir :,, Upp komast svik um síðir"!! 

Jæja meira um staðreyndir lífsins seinna...


Marsibil Sara Pálmadóttir
03. apríl 2008 klukkan 19:02
Marsibil Sara Pálmadóttir
Engin athugasemd
25mars

Ég GÚBBAĐI bara...

Hæ Ásgeir hér!.... Nei þetta er bara Marsibil...

jæja páskarnir hafa liðið stóráfallalaust. Ég sá það alveg fyrir mér að ég væri núna alveg hætt að fá þessa páskaveiki, slapp alveg í fyrra og var ALVEG að fara að sleppa núna en svo bara í gærmorgun þá.. DING DONG, hver er mætt á svæðið önnur en ælupestin, með farangur og alles. Sagðist ekki ætla að fara fyrr en hún væri búin að MURKA úr mér líftóruna! Jæja ég streyttist á móti í allann gærDAG en svo kom kvöldið og nóttin og að sjálfsögðu lúllaði gubba vinkona mín bara í rúminu hjá Eisa á meðan ég gisti hjá Gustavsberg gamla félaga, skítfínn kall!!

Jæja nóg af lýsingum er haggi??

En annars þá fékk ég lítið páskaegg númer eitt sem Bogga systir var svo væn að gefa mér úr eggjabakkanum sínum :)
Ég var ein í kotinu alla páskana, en var nú lítið þar sjálf. Var ýmist að spila uppí Rauðumýri eða að skutla gamla fólkinu í fjölskyldunni heim til sín í sveitina að sofa eftir tilraun til þess að mála bæjinn rauðann ;) hehe

Já svo verð ég að þakka einni sérstakri manneskju fyrir að beila á mér á laugardaginn og hafa af mér rúnt í skagafjörðinn. Takk skvís fyrir að spara mér ómakið að hringja í þig og beila á þér.. Það verður bið á því að þér verði boðið í heimsókn "vinkona"!!!

Fjú gott að koma þessu frá sér!! :)

Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.... Takk fyrir páskana fjölskyldan mín. Hefði ekki getað hugsað mér þetta betra, nema kannski að Elísabet skvísa hefði getað komist í matarboðið á sunnudeginum..

Jæja takk og bæjjj

LE MASS

25. mars 2008 klukkan 17:00
Marsibil Sara Pálmadóttir
1 athugasemd
04mars

Fuglastríđ

Þetta er skilduáhorf og ég lofa að allir fá nostalgíu og flashbacks og allt það..

Enjoy..... http://www.youtube.com/watch?v=LMPI5fZvZsk

Marsibil sem er vonandi búin að lýsa upp daginn hjá einhverjum!
04. mars 2008 klukkan 11:09
Marsibil Sara Pálmadóttir
1 athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvernig á ég ađ lita á mér háriđ? (Svona í alvöru)

Leit